Velkominn í Himmaríki

sunnudagur, janúar 01, 2006

Nýársávarp Konungs Himmaríki

Góðir Landsmenn gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna. Hér sit ég í vinnunni og velti fyrir mér hvað sé hægt að gera næstu 10tímana sem eru eftir af þessum vinnudegi. fór frekar seint að sofa í gær um 2 svo maður er ansi þreyttur í dag. Ég drakk hálft rauðvínsglas eitt freiðivíns glas og hálfan bjór frá 20-01 í gær svo ekki get sagt að timburmenn séu að aftra mér frá starfi í dag. held ég hafi ekki farið svona snemma á fætur á nýársdag lengi lengi. Hef ákveðið að halda upp á áramótin með tilheyrandi sukki næstu helgi bara þar sem ég verð einn heima þá helgi. Herdís er nefnilega að skella sér til Færeyja í vinnuferð. Jæja vona að þetta sé hressandi dagur fyrir ykkur flest öll, haldiði bara áfram að sofa.
Kóngurinn kveður

2 Comments:

Blogger Erla said...

Gleðilegt ár lúsin mín

8:38 f.h.

 
Blogger Hilmar said...

Frábært og Herdís að koma heim í dag gastu ekki látið mig vita fyrr :) Lucy Ammons


ég elska svona persónuleg spam

1:35 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home