Velkominn í Himmaríki

laugardagur, apríl 28, 2007

ég er Mættur

Hann Hilmasson kom í heiminn 26apríl klukkan 6:01 18merkur og 53cm. hægt er að fylgjast með ævintýrum hans hér

sunnudagur, apríl 15, 2007

40vikur

Jæja þá eru komnar 40vikur hjá henni herdísi og maður er bara orðin frekar spenntur á að verða Pabbi í dag. En nei nei ekkert bólar á erfingjanum ég skil ekkert í þessu. Mér er skapi næst að fara niðrá fæðingadeild á eftir og krefjast útskýringa en dagurinn er ekki alveg liðinn. Þetta er bara ófyrirgefanlegt ég er sko hættur að trúa á læknisvísindin og aldrei að vita nema að við gerum þetta bara sjálf. Hef séð þetta í kvikmyndunum allt sem þarf er soðið vatn hrein handklæði og auðvitað skæri.
Jæja það þýðir víst ekkert að svekkja sig á þessu en ætli hann komi ekki bara sumardaginn fyrsta, við verðum bara að bíða. Annars er allt gott að frétta Herdís er við góða heilsu enþá að vinna og í hreiðurgerð hér heima.
erum að dútla við að gera einhverskonar barnalandsíðu búinn að setja link á hana hér til hliðar.

Sæl að sinni
Hilmar Barnlaus eins og er....